Veiðiklúbburinn Öngulrassar spratt upp frá veiðiferð sem nokkrir hálvitar fóru til Miðjfjarðarár til laxveiða sumarið 2001. Það fer litlum sögum af afrekum á sviði laxveiði en hins vegar veiddist dýrasta bleikja Íslandssögunnar í þeirri ferð.
Elvar sýndi snemma takta og tókst að losa sig við maðkalax í löndun í Vesturá en Óli og Ölli sem báðir voru með í för trompuðu það og urðu ekki varir, að vísu segist Ölli hafa orðið var í Hlaupunum en við tökum því eins og hverri annarri veiðisögu.
Út frá þessu spratt nafn klúbbsins og hefur hann farið á kostum víða um land og önnur lönd síðan og hittist helst í Stóru Laxá á svæði IV sem eins og flestir vita er tilvalinn staður til að koma heim frá með öngulinn í rassinum.
Félögum hefur fjölgað hægt en örugglega og er aflaklóm sparkað samstundis úr klúbbnum.
Hér á þessum vef ætlum við að fara hamförum í veiðisögum og bloggi.