Síðasta sumar fór ég tvisvar sinnum í Hólá eða kannski réttara að segja Laugarvatn. Í fyrra skiptið fór ég í byrjun maí með formanninum. Það var fínt veður. Við vorum búnir að prófa Sogið og Þorleifslæk í apríl, en án árangurs.
Við mættum þarna í kringum hádegið, húsfreyjan á bænum (Útey) tók á móti okkur, hún sagði að það væru nú ekki margir búnir að vera veiða þarna í vor. Hún hafði áhyggjur að hestarnir á túninum myndu sýna bílnum einhverjum áhuga þannig að á nokkrum mínútum var hún búin að reisa girðingu í kringum bílinn þar sem við lögðum honum fyrir framan vatnið. Það er ótrúlega gaman að koma þarna, fallegur staður og fólkið á bænum er mjög almennilegt.
Maður var nokkuð spenntur því það var logn og maður gat séð fiskinn vaka meðfram bökkunum. Ég hafði veitt þarna seint um sumarið áður, þannig að maður vissi ekki betur og arkaði að ósnum, þar sem áin byrjar. Þar reyndum við í töluverðan tíma, löbbuðum meðfram ánni, en ekkert gerðist.
Eftir einhverja tíma fórum við að þokast aftur að vatninu. Við bílastæðið vinstra megin er gamall braggi, þar óð maður út eins langt og maður þorði og kastaði eins langt og maður gat, og það leið ekki að löngu fyrr en það fór að bíta á. Við höfum örugglega sett í 6 fiska, en náðum 3 á land, fallegar bleikur, frá 1,5 til 2 pund. Peacock var mjög góð fluga þarna. Það er gróður þarna fyrir utan og greinilegt að bleikjan liggur þar.
Seinni ferðin sem ég fór síðasta sumar var í júní. Þetta var einn heitast dagur á suður og vesturlandi, algjört logn og 20 stiga hiti. Ég fór með boxaranum Simba í þessa ferð. Við vorum í nærum, vöðlum og bol til klukkan 21 um kvöldið og vorum að stikna. Við byrjuðum að rölta að ósnum, ekkert gekk þar, og fórum síðan töluvert eftir ánni, urðum ekker varir.
Eftir nokkra tíma ákvað ég að prófa aftur sama stað og um vorið. Það leið ekki á löngu fyrr en 4 fiskar voru búnir að bíta á, náði 2 á land, alveg eins og síðast um 2 punda fallegar bleikjur. Kallaði á Simba, börðum vatnið alveg hægri og vinstri og settum í um 10 fiska frá 1 til rúmlega 2 punda. Það gekk ekkert með Peacock fluguna heldur var það killer og mobuto sem voru skæðar. Watson fancy og Peter Ross flugurnar eru líka mjög góðar þarna.
Þessi staður er mjög skemmtilegur, ekki of langt frá borginni og hæfilega dýrt. Eitt sem er vert að minnast á, en það er að það er miklu meiri veiði í vatninu sjálfu á vorin og fyrri part sumars, ósinn og Hólaáin sjálf er betri síðsumars.
Myndir frá fyrri ferðinni


