31. júlí 2010 Register  Login
You are here: Heim  
Fréttir
Ný stjórn í Öngulrössum - 23. júní 2010

Á auka-aðalfundi Öngulrassa í Glasgow þann 14. júní sl var kjörin ný stjórn Öngulrassar.  Elvar var kjörinn Sitjandi Formaður og Óli var kosinn Starfandi Stjórnarformaður.  Fundinn sátu Elvar og Ólafur en aðrir voru fjarverandi.

 
Laxá í Kjós - 26. september 2009

4 meðlimir Öngulrassa og einn gestur mættu í veiði 7-9 sept. í Laxá í Kjós.  Erfiðar aðstæður þar sem ekki var búið að rigna í allt sumar.  Stökkvandi fiskur út um allt.  Það náðust 3 laxar og um 10 birtingar.  Hægt að sjá myndir úr veiðiferðinni á myndasíðunni okkar.

 
Hverasvæðið við Kleifarvatn - 7. september 2009

Kafað á hverasvæðinu í sunnanverðu Kleifarvatni.  Þar er helst von á að setja í soðinn silung. Alveg frábærlega skemmtilegt að kafa þarna. Best að tvísmella og skoða í stórum glugga.

 
Elvar og Stjáni í Varmá / Þorleifslæk - 20. ágúst 2009

Elvar og Stjáni skruppu eftir vinnu til að berja sjóbirtinginn í Varmá / Þorleifslæk.  Voru þeir ekki búnir að berja lengi þegar fiskar fóru að narta.  Svo fóru hlutirnir að gerast þegar veiðin færðist við brúna þar sem teljarinn er staðsettur.  Komu nokkrir fiskar þar, frekar litlir.  En Stjáni var búinn að veiða ágætis fisk í beyjunni áður en kemur að brúnni.  Síðan fór Elvar á þann stað og náði einum vænum fiski þar.  Síðan var ferðinni heitið á stíflusvæði þar sem sáust nokkrir fiskar en enginn vildi bíta á.  Var þá kominn 12 vindstig og skítakuldi og var þá ákveðið að fá sér frekar að borða en að veiða.

 
Bleikjur á Þingvöllum, myndir - 26. júlí 2009

Myndir af bleikjum á Þingvöllum

 

 read more ...
Nýjar myndir frá Silfru - 23. júlí 2009

Nýjar myndir teknar í Silfru á 17. júní í glæsilegu veðri.

Farið í "Myndir" til að skoða .

 read more ...
Stjáni og Elli eru í Eystri Rangá as ví spík - 15. júlí 2009

Stjáni og Elli stukku á tilboð að taka 1 dag í Eystri Rangá í dag og eru nú að veiðum.  Kapparnir eru þegar búnir að setji í nokkur kvikindi og amk 2 komnir á land klukkan 10.  Má því varlega áætla að þeir endi í 8-10 fiskum á eina stöng.  Hehe.  Setja smá pressu á þá. 

Update: Þeir eru á svæði 2 og amk 6 fiskar upp í 8pund komnir klukkan 12.

Stjáni að landa 5 pundara í morgun.

 
Sjóstangveiði - 29. júní 2009

 

 Á fimmtudag ætlar klúbburinn að fara í sjóstangveiði.  Myndir og saga kemur á föstudaginn.

 
Öngulrassar á lífi - 21. júní 2009
ÓJÁ

Stjórnin er nýkomin frá "Spáni" eftir mjög skemmtilega veiði. Einnig fór stjórnin í Tannastaðatanga og fékk öngulinn vél upp í rass#$%#". Síðan fór Ég, sem er annaðhvort starfandi stjórnarformaður eða sitjandi formaður (man ekki hvaða titil ég er með núna) í Gíslholtsvatn með Öngulrassasyni.

Hægt að nálgast myndir á síðunni, nema á Spáni, því að fiskurinn át myndavélina. 
Meðlimur flýr land - 21. júní 2009
Ölli hefur ákveðið að skella sér til Noregs að leita að nýjum veiðistöðum fyrir Öngulrassa, þar sem Ísland er orðið of lítið. Það mun koma skygnilýsing og veiðistaðalýsing mjög fljótlega frá Ölla. 
Nýjar myndir - 21. júní 2009

Það eru komnar nýjar myndir frá Tannastaðatanga, Grafará og svo vantaði myndir frá Rússlandsferð sem búið er að laga

 
Stjórnin gerði það gott á Grænlandi - 18. september 2008
Stjórnin var að koma úr 5 (6) daga veiðiferð á Grænlandi og veiddu c.a. 70-80 bleikjur hvor. Hér til hliðar má sjá smá myndband en vonandi kemur grein um þessa veiðiferð fljótlega. 
2 laxar og 1 urriði en engin sjóbleikja í Grafará - 8. ágúst 2008

 

 
Stjórnin og meðstjórnendur í Grafará - 6. ágúst 2008

Í dag halda Formaðurinn, Stjórnarformaðurinn, Bomber og Drési í víking til Hofsós að reyna við sjóbleikjuna í Grafará.  Vonandi kemur eitthvað um það síðar...

 
Starfandi stjórnarformaður veiddur - 28. júlí 2008

Það er ekki nóg að fá öngulinn í rassgatið, heldur reyndi fiskur að éta starfandi stjórnarformann.  Það er mál með vexti að starfandi stjórnarformaður er staddur á Krít, og ákvað að fara í sjóinn, vopnaður 2 háfum og ætlaði sko að sýna krökkunum hvernig á að veiða fisk.  Eftir c.a 30 mínútna "ó" veiði gafst hann upp og ákvað að synda í sjónum.  Eftir smástund byrjaði eitthvað að narta og svo aftur, var það fiskur að veiða.  Fór starfandi stjórnarformaður í flýti upp á land.  Þegar starfandi stjórnarformaður fór að spjalla við localinn, þá kom einn og sýndi mjög gott bit á löppinni eftir brjálaðnn fisk.  Það er stórhættulegt að veiða.

Kveðja, frá Krít.  Starfandi stjórnarformaður. /EÞÁ

 
Formaðurinn gerði það gott í Ásgarði í kvöld - 23. júlí 2008

Formaðurinn kíkti á kunningja sína og fékk að taka nokkur köst í Ásgarði núna í kvöld og gerði sér lítið fyrir og náði einum 6 punda, silfurgráum og grálúsugum á tommu svarta francis keilutúbu á tvíhenduna á Ystu Nöf. Grein og myndir væntanlegar á morgun. /Óli

 
Grein um Kharlovka alveg að skella á - 23. júlí 2008

Frézt hefur að Stjórnarformaðurinn sitji sveittur við skriftir úti á Krít og er víst að leggja lokahöndina á grein um veiðiferð sína til Rúzzlands núna í vor.  Megi penninn vera beittur og bjórinn kaldur. /Óli

 
Öngulrassar stóðu undir nafni - 9. júlí 2008

Ekki náðist að landa beini við Tannastaðatanga.  Formaðurinn var að vísu nærri búinn að eyðileggja ferðina þegar hann í bríaríi lagði frá sér flugustöngina og henti svörtum Tóbí útaf Efra nefi þegar sólin laumaðist bakvið Ingólfsfjall í ljósaskiptunum.  Eitthvað stærra en 6 pund greip spúninn en laxinn sást aldrei og eftir 5 mínútur ákvað hann að fara og þar sem bein sjónlína er amk 2 kílómetrar yfir á hinn bakkann þá var hvorki hægt að elta né gefa eftir og línan fór með háum smell.  Lexía:  Halda sig við flugustöngina. /Óli

 
Veiðibúðin opnar aftur - 8. júlí 2008

Veiðibúð Öngulrassa opnaði aftur af fullum krafti í dag...

 read more ...
Tannastaðatangi á þriðjudag - 7. júlí 2008

Nú ætla Öngulrassar að skella sér í heita pottinn að Tannastaðatanga og vonandi setja í þann stóra í leiðinni. Nei, ekki í pottinum heldur við Efra og/eða Neðra Nef. /Óli

 
  
Nýtt á vefnum
Köfunarvídeó - Þaraskógur við Óttarstaði Straumsvík - 23. apríl 2009

Skemmtileg rólegheitaköfun við Óttarstaði í Straumsvík.  Þarna er mikið að þara og ekki laust við að maður fái smá Frumskógafíling

 read more ...
Videó - Ufsatorfa við Garðsbryggju - 19. júlí 2008

Var að kafa við bryggjuna og lenti í ufsatorfu.

 read more ...
Grænland, ágúst 2007 - 16. júlí 2008
Elvar, Stjáni, Óli, Páll Axel sonur og Þurý systir Óla skelltu sér til Grænlands í veiðiferð, 21. - 24. ágúst 2007. read more ...
Öngulrassar - 16. júlí 2008

Saga Öngulrassar

 read more ...
Veiði- og veiðitengd myndbönd - 14. júlí 2008
Öngulrassar hafa verið dullegir að taka myndbönd gegnum tíðina. Nú eru þau smátt og smátt að birtast hér á vefnum... read more ...
Grein um Mávabótarála - 3. júlí 2008
Grein um ferð í Mávabótarála árið 2002 read more ...
Grein um Hólaá - Laugarvatn - 3. júlí 2008
Grein um ferð í Hólaá við Laugarvatn árið 2002 read more ...
  
Stjórnin að veiðum í Swanswater

Stjórnin er nýkomin úr ferð til Skotlands og var að veiðum í 3 daga í Swanswater Fishery nálægt Stirling c.a. 45mín frá Glasgow.  Þar eigi all langt frá var Vilhjálmur "Braveheart" frá Völlum vegin í den.  Við lentum í frábæru veðri, nánast hitabylgju alla dagana og erum tannaðir í rusl.  Hér má sjá video-samantekt af veiðinni sem gekk frekar treglega sökum hita en að sjálfsögðu slapp sá "stóri".  Myndskeiðið byrjar rólega framan af ein "veiði-action" hefst um 2:20.

 

 

Öngulrassar in Swanswater - June, 2010 from Olafur Gislason on Vimeo.

 Print   
Tröllið í Miðfjarðará

Stjáni gerði góða ferð í Miðfjarðará um síðustu helgi.  Hann náði 14 löxum, þar af landaði hann 97cm hæng í Stekkjarfljóti og 85cm hrygnu í Túnhyl. Hann hefur að sjálfsögðu fengið skriflega áminningu frá stjórn fyrir brot á reglum klúbbsins mþa veiða svona mikið.

97cm hægur úr Stekkjarfljóti

 

85cm hrygna úr Túnhyl

 Print   
Öngulrassa - genin hafa fylgt með

 

Öngulrassadóttir fór með pabba sínum á Þingvelli og veiddi nokkrar bleikur og murtur.  Eins og sjá má, þá fellur eplið ekki langt frá eikinni.

  
Bleikjur á Þingvöllum

Bleikjur á Þingvöllum

 

  
Boldangs bleikja í Hallsvík á Þingvöllum

Mætti þessari í Hallsvíkinni þegar ég var að kafa þar í dag.  Þarna var dreifð torfa að svamla í heita vatninu en fyrir utan var mun kaldara og enginn fiskur.  Náði frábæru vídeoi af henni og systrum hennar sem verið er að klippa til og kemur vonandi hér síðar í dag.

 

 

 

  
Lífleg morgunvakt í Eystri Rangá

Hér eru myndir af þeim félögum, Ella og Stjána sem eru að gera það gott í Eystri Rangá í dag.  Morgunveiðin var 5 laxar og 1 urriði.

  
Sólbað í Leirársveit

Óli og Andrés voru að koma úr 2ja daga sólbaði í Laxá í Leirársveit.  Við vorum saman á stöng ásamt Gunna Magg og þökk sé Gunna að okkar stöng marði hollið.  Gunni tók sexpundara í Miðfellsfljóti á svarta francis með gullþríkrækju og hitchaði svo upp annan 5 pundara í Laxfossi.  Síðar verður birt myndbank hvar Gunni er að þreyta laxinní Miðfellsfljóti.  Gunni sótti um aðild að Öngulrössum en var hafnað þar sem hann veiddi flesta fiskana í túrnum.

Óli náði öðrum 6 pundara í Laxfossi og missti 2 á hitchið en við misstum allir samtals 4 í fossinum þennan morgun því strákarnir voru soldið fyrir að narta rétt í hitchtúburnar og hanga á í nokkrar mínutur þar til við ákváðum að sleppa því að veiða þá sem er eitt afbrigði af "veiða/sleppa" sem sumir þjóðkunnir veiðimenn eiga til að stunda.  Hér er mynd af Óla og Gunna með fiskana úr Laxfossi.  Ljósmyndarinn, Andrés, vildi vekja sérstaka athygli á glæsilegri bifreið í bakgrunni.

 

 

 

 Print   
Stjórnarfundur á Sjóstöng

Stjórnin skellti sér í sjóstöng í gær á bát frá "Hvalalíf" og skemmti sér konunglega ásamt óbreyttum félögum í Klúbbnum.  Það er skemmst frá því að segja að Öngulrassar stóðu undir nafni og var það almannarómur að aldrei hefði fiskast jafn illa og einmitt þá. 

Skipstjórinn var gerður að heiðursfélaga í klúbbnum því honum tókst að þræða á milli einu fisklausu staðanna í Faxaflóa.  Eins og oftar þá lofum við að skrifa grein um þessa frægðarför en munum væntanlega ekki standa við það.

Hér er mynd af Ása með 2 í einu og þar með missti hann af stjórnarsæti.

 

 Print   
Gíslholtsvatn

 

Öngulrassasonur með 3 fiska úr Gíslholtsvatni........

 

  
Sjóbleikja á Grænlandi

Mælt með að tvíklikka á myndina og velja "Watch in High Quality

  
Drési Fallinn!

Drési fallinn!

Fréttamaður Öngulrassa náði þessum myndum af Drésa þar sem hann sást landa og meðhöndla lax í veiðiferð.  Drési sem hefur verið þurr síðan hann gekk til liðs við klúbbinn féll í gær og landaði 2 löxum í beit í hyl númer 19 í Grafará við Hofsós. 

Drési hefur löngum þótt liðtækur með maðkinn og olli miklum vonbrigðum þegar hann sveiflaði buffinu út í hylinn og setti í og landaði tveimur 4ra punda silfurgljáandi löxum í beit.  Allir aðrir héldu að þeir væru þarna til að veiða ekki sjóbleikju en ferðin breyttist snarlega út í það að veiða ekki lax.

Hér fyrir neðan má sjá þessar frægu myndir. 

 

 

 

  
Myndband - Grafará - Viðureign við þann silfraða
  
Grafará í ágúst 2008

Stjórnin ofl voru á ferð í Grafará 6. til 7. ágúst.  Ætlunin var að ná í eitthvað af hinni frægu sjóbleikju en lítið fór fyrir því.  Ósinn og pollarnir þar fyrir ofan voru barðir sundur og saman og ekkert sást af sjóbleikju. 

Helst má ætla að hún hafi lagt ugga undir sporð og strunsað upp eftir allri á.  Einnig var áin frekar vatsnlítil og gæti það hindrað bleikjuna í að ganga upp ána.

Ákveðið var að kíkja upp í ána og byrjuðum við á veiðistað sem merktur er 20.  Þar ákvað Formaðurinn að prófa að elta bleikjuna andstreymis og setti fékk fljótlega góða töku.  Heldur varð hann undrandi þegar á land skoppaði 3ja punda spikfeitur staðbundinn urriði enda þótti hann taka frekar fast á móti veiðimanninum.

 

Bomber rauk niður alla á og kastaði hægri vinstri og varð lítið var og sama má segja um aðra veiðimenn.

Drési kom fljótlega að ansi álitlegum hyl og ákvað hann að renna maðkinum þar ofan í og setti þar í 4ra punda lax í öðru kasti og eftir snarpa og erfiða viðureign handtók hann laxinn og sveiflaði í land enda aðstæður til löndunar erfiðar og hann einn á svæðinu.  Í sama mund hringdi Formaðurinn í hann og fékk ekkert nema öskur og köll í símann og mátti helst ætla að lax hefði veiðst.

Formaður og Stjórnarformaður ákváðu að kíkja á Drésa enda stutt frá og þegar að var komið var stöngin kengbogin og önnur hörkuviðureign í algleymingi.  Hófst þá myndataka mikil og upptaka og vondandi fá lesendur að sjá afrakstur þess fljótlega.

En Grafará er mjög falleg á og gaman að veiða þarna nema hvað betra hefði verið að hafa eitthvað af sjóbleikju í ánni og einnig að vera með skemmtilegri veiðifélögum.

/Óli

  
Ýmsar myndir
Tangavatn í maí 2006
Formaður kíkti í Tangavatn með krökkunum og allir ...
Grafará við Hofsós í júlí 2006
Stjórnin skellti sér norður í land í sjóbleikju og...
Skógaá í júní 2002
Formaður og Starfandi Stjórnarformaður kíktu í Skó...
Stóra Laxá IV í september 2005
Árleg veiði- og skíðaferð Öngulrassa í Stóru IV um...
Tannastaðatangi í júní 2005
Stjórnin skellti sér í Tannastaðatanga snemma suma...
Tannastaðatangi í Ágúst 2005
Stjórnin skellti sér á Tannastaði í Golfveiðimót í...
Tannastaðatangi í ágúst 2002
Golfveiðimót Fugla að Tannastaðatanga í ágúst 2002
Rússland - Kharlovka
Myndir frá Kharlovka Rússlandi
Rio Ebro í september 2006
Stjórnin skellti sér í víking til Spánar og gerði ...
Tannastaðatangi Júní 2009
Stjórnin í Tannastaðatanga
My default album
Grafará - Hofsós 2008
Öngulrassar fjölmenntu í Grafarána við Hofsós í by...
Láxá í Refasveit í ágúst 2006
Formaðurinn skellti sér í Refasveitina og lenti í ...
Silfra, Þingvöllum 17.6.2009
Stóra Laxá IV í ágústlok 2007
Árleg veiðiferð Öngulrassa í Stóru Laxá svæði IV
Kuðungableikjur á Þingvöllum, júlí 2009
Fæðing Öngulrassa í júní 2001
Fyrsta veiðiferðin var farin í Miðjfjarðará, 14 ma...
Laxá í Kjós Sept 2009
  
River Ebro Espania September 2006

Væntanleg grein um leirgeddu-veiðiferð Stjórnarinnar til Rio Ebro, sunnan við Barcelona á Spáni í september 2006

  
Tangavatn Október 2007

  
Öngulrassar - The Swanswater Movie Trailer

  
Væntanlegar greinar
  • Sog - Ásgarður júlí 2008
  • Tannastaðatangi júlí 2008
  • Veiðiferð til Rússlands maí 2008
  • Veiðiferð til Skotlands mars 2008
  • Stóra Laxa IV september 2007
  • Veiðiferð til Grænlands ágúst 2007
  • Veiðiferð til Skotlands mars 2007
  • Stóra Laxa IV september 2006
  
TestA
 Print   
Letinginn

Letinginn!  Nýjung á Íslandi! 

Leigjum Letingjann til lengri og skemmri tíma.  Ómissandi í hverja veiðiferð.  Vantar þig veiðifélga sem lítið fer fyrir?  Áttu rándýrt laxveiðileyfi sem þú getur ekki fullnýtt?  Þá er Letinginn svarið.

 

  
Öngulrassar
  • Ólafur Gíslason - Starfandi Stjórnarformaður
  • Elvar Þ. Ásgeirsson - Sitjandi Formaður Ölver Thorstensen
  • Áskell Fannberg
  • Kristján Vilhjálmsson  - Bomber
  • Hjalti Magnússon
  • Andrés Andrésson - Drési

 

  
Hafa samband
  
Notendur
People Online People Online:
Visitors Visitors: 0
Members Members: 0
Total Total: 0

  
Tenglar
  
Sjóstangveiði
  
Laxá í Kjós
  
Laxá í Leir
 Print   
Heim  |  Greinar  |  Myndir  |  Veidibud  |  Video  |  Ongulrassar
Copyright 2000-2008 Öngulrassar   |  Privacy Statement  |  Terms Of Use